Nýskráningum bifreiða fækkaði um 95% í desember sl. frá sama mánuði árið áður. Alls voru 77 bílar skráðir nú en fyrir ári voru þeir 1402. Þetta kemur fram í nýjum tölum á vef Umferðastofu.

Samdrátturinn var svipaður hvort sem horft er til nýrra eða notaðra bíla, en 56 nýir bílar voru skráðir nú í desember og 21 notaður.

Suzuki söluhæstur í desember

Af nýjum bílum seldist mest af Suzuki fólksbílum, 12 bílar, og Toyota var í öðru sæti með 10 bíla. Fyrir ári seldi Toyota mest, 150 nýja fólksbíla, en Suzuki seldi þá 25 bíla. Alls seldust 56 nýir fólksbílar í desember sl. en enginn annar framleiðandi en Suzuki og Toyota seldi meira en fjóra nýja fólksbíla í mánuðinum.

21 notaður bíll seldist nú í desember. Þrír Benz fólksbílar seldust en minna af öðrum tegundum. Fyrir ári seldist einnig mest af notuðum Benz fólksbílum, en þá var salan 64 stykki í desember.