Setning Þórunnar J. Hafstein, skrifstofustjóra dómsmála- og löggæsluskrifstofu ráðuneytisins, í embætti ráðuneytisstjóra hefur verið framlengd til 31. desember 2009 vegna framlengds veikindaleyfis Þorsteins Geirssonar ráðuneytisstjóra.

Þetta kemur fram á stjórnarráðsvefnum.

Bryndísi Helgadóttur, settum skrifstofustjóra lagaskrifstofu, hefur einnig verið falið að vera áfram staðgengill ráðuneytisstjóra til sama tíma.

Þá mun Haukur Guðmundsson áfram stýra dómsmála- og löggæsluskrifstofu.