Pétur Hafsteinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs N1 og mun hann taka sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Pétur Hafsteinsson útskrifaðist sem viðskiptafræðingur (Cand. Oecon) frá Háskóla Íslands árið 2004 og M.Acc. frá sama skóla árið 2006. Pétur hefur starfað hjá N1 frá árinu 2007 og verið deildarstjóri hagdeildar frá 2011. Pétur starfaði á endurskoðunarsviði KPMG 2004-2007.