Pósturinn og IKEA hafa gert samstarfssamning um vörudreifingu á sendingum IKEA á höfuðborgarsvæðinu.

Svanhildur Hauksdóttir, birgðastjóri IKEA, segir í tilkynningu að samstarfið sé fagnaðarefni og að heimsendingar séu mikilvægur hluti af grunnþjónustu IKEA.

Haft er eftir Elvari Bjarka Helgasyni, forstöðumanni sölu-og þjónustudeildar Póstsins, að fyrirtækið hafi lagt mikla áherslu á vörudreifingu og að samningurinn sé hluti af þeirri þróun. Einnig tekur hann að hann hlakki til samstarfsins með IKEA.