Eygló Harðadóttir félags- og húsnæðismálaráðherra hefur skipað nýja stjórn Íbúðalánasjóðs. Formaður stjórnarinnar er Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir lögmaður og tekur hún við af Jóhanni Ársælssyni. Tilkynning um skipan nýrrar stjórnar hefur verið birt á vef Kauphallar Íslands.

Samkvæmt breytingum á lögum um húsnæðismál frá júlí 2012 er nú gerð krafa um að forstjóri og stjórn sjóðsins standist kröfur Fjármálaeftirlitsins um hæfi.

Stjórn Íbúðalánasjóðs er skipuð eftirtöldum fulltrúum:

Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, lögmaður, formaður stjórnar
Hrund Hafsteinsdóttir, lögmaður, varaformaður
Haukur Ingibergsson, f.v. forstjóri Þjóðskrár Íslands, aðalmaður
Kristrún Heimisdóttir, lektor í lögfræði við Háskólann á Akureyri, aðalmaður
Stefán Ólafsson, prófessor félagsvísindadeild HÍ, aðalmaður