Ragnheiður Haraldsdóttir tekur við af Guðrúnu Agnarsdóttur sem forstjóri Krabbameinsfélags Íslands eftir áramótin og lætur þá jafnframt af störfum sem sviðsstjóri á sviði stefnumótunar heilbrigðismála í heilbrigðisráðuneytinu.

Ragnheiður Haraldsdóttir útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands og er með MSc gráðu frá Háskólanum í Wisconsin í Bandaríkjunum og meistaragráðu í stjórnun á heilbrigðissviði frá McGill háskólanum í Kanada. Hún var aðstoðarhjúkrunarforstjóri og fræðslustjóri á hjúkrunarsviðs Landspítalans frá 1987-1994 en hefur síðan starfað í heilbrigðisráðuneytinu, nú síðast sem sviðsstjóri á sviði stefnumótunar heilbrigðismála segir í tilkynningu.