Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, og Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri, eru sammála um mikilvægi öflugrar löggæslu.

Þeir segja að ávinningur sé af skipulegu samstarfi lögreglu og  borgaryfirvalda.

Í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að dómsmálaráðherra hafi fagnað því framtaki Reykjavíkurborgar að ráða sérstaka menn til að auka öryggisgæslu í miðborginni.

Samstarf af þessu tagi ætti að þróa áfram í samvinnu lögreglu og sveitarfélaga.  Í því sambandi var rætt um hverfagæslu til eftirlits með tilteknum svæðum, grunsamlegum eða óeðlilegum mannaferðum og hópasöfnun unglinga og miðlun upplýsinga um slíkt til  lögreglu.

„Hverfagæsla kæmi hins vegar aldrei í stað öflugrar löggæslu í borginni.  Var ákveðið, að hugað skyldi að gerð samkomulags lögreglu og Reykjavíkur um skipulegt samstarf um hverfagæslu. Það er sameiginlegt markmið ráðherra og borgarstjóra að tryggja sem best öryggi borgaranna með öflugri löggæslu,” segir í tilkynningunni frá Reykjavíkurborg.