Samkvæmt forsendum samkomulags aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnar Íslands vegna undirritunar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í maí 2011 hefði tryggingagjald getað lækkað um 0,75% í takt við minnkandi atvinnuleysi og rúma fjárhagsstöðu Atvinnuleysistryggingasjóðs, en ekki 0,1% eins og til stendur.

Þetta kemur fram á vef Samtaka atvinnulífsins (SA) en í gær tilkynnti fjármálaráðuneytið að tryggingagjaldið myndi lækka um 0,1% um áramótin.

„Lækkuninni var ætlað að standa undir hluta af umsömdum hækkunum launa um 3,25% þann 1. febrúar nk.,“ segir á vef SA.

„Launagreiðendur á Íslandi þurfa því að borga aukalega um 6 milljarða króna á árinu 2013 til ríkisins sem verður til þess að svigrúm til að hækka laun minnkar, færri verða ráðnir í ný störf og líkur eru á því að verðbólga hjaðni ekki eins og til stóð.“