Michael Schumacher,  fyrrum heimsmeistari í Formúlu 1 kappakstrinum, er kominn úr lífshættu samkvæmt vini hans Philippe Streiff. Þetta kemur fram í The Telegraph í morgun.

Streiff ræddi við fjölmiðlafólk fyrir utan spítalann þar sem Schumacher liggur. Hann sagði að Gerard Saillant, skurðlæknir, hafi sagt honum að þó Schumacher liggi enn þungt haldinn þá sé hann úr lífshættu. Þrátt fyrir þessi orð Streiff hafa stjórnendur spítalans ekki gefið út neina yfirlýsingu varðandi málið.

Schumacher hlaut alvarlega áverka á heila þegar hann féll á skíðum á sunnudagsmorgun í Sviss.