Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að rýmka reglur um verðbréf sem teljast veðhæf í reglulegum viðskiptum fjármálafyrir­tækja við bankann að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá bankanum.

Þar kemur fram að breytingarnar miða að því að færa reglur Seðlabankans nær því sem gerist í nálægum löndum þannig að rekstrarumhverfi og samkeppnisstaða íslenskra banka verði áþekk því sem erlendir samkeppnisbankar búa við að því er varðar veðlánaviðskipti við seðlabanka. Meðal nýrra veðhæfra verðbréfa verða nú verðbréf í erlendum gjaldmiðli auk þess sem rýmkaðar verða reglur um sértryggð skuldabréf, samkvæmt nánari skilyrðum sem útfærð verða í reglum Seðlabankans.

Ýmsir seðlabankar hafa rýmkað mögulega lausafjárfyrirgreiðslu sína undanfarnar vikur og mánuði. Á íslenskum millibankamarkaði hafa viðskipti gengið vel fyrir sig, ávöxtun verið í eðlilegu sam­hengi við stýrivexti Seðlabankans og miðlun lauss fjár undan­tekningarlaust verið hnökralaus.

Nýjar reglur um veð verða kynntar fjármálafyrirtækjum á næstu dögum og birtar með hefðbundnum hætti segir í tilkynningunni.