Seðlabanki Íslands hefur frestað veðkalli á hendur Sparisjóðabanka Íslands hf. (áður Icebank) sem taka átti gildi í dag, 10. desember, til 28. janúar 2009.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Þar kemur fram að unnið er að fjárhagslegri endurskipulagningu Sparisjóðabankans með stærstu kröfuhöfum hans og er stefnt að því að niðurstaða hennar liggi fyrir innan framangreinds frests.