SJ1 hefur selt alla hluti sína HB Granda, samkvæmt flöggun til Kauphallarinnar. Um er að ræða 5,85% af heildar hlutafé.

Verðmæti viðskiptanna er um 1,2 milljarðar. Þetta eru 99.884.543 hlutir og salan fór fram á genginu 12,5 krónur á hlut, samkvæmt upplýsingum frá Markaðvakt Mentis.

SJ1 er að fullu í eigu Sjóvá og hefur þann eina tilgang að fjárfesta og ávaxta eignir tryggingarfélagsins. Sjóvá er að fullu í eigu dótturfélag Milestone.