Sjóvá-Almennar tryggingar hefur keypt í Actavis Group fyrir 510 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni. Um er að ræða 7.500.000 hluti, keypta á genginu 68,053.

Eftir viðskiptin eiga fjárhagslega tengdir aðilar tryggingafélagsins 198.560.994 hluti í Actavis, eða um 13,5 milljarðar króna, miðað við kaupgengið hér að ofan.

Sjóvá-Almennar tryggingar hf. er dótturfélag Milestone ehf., sem er í eigu Karls Wernerssonar, Steingríms Wernerssonar og Ingunnar Wernersdóttur.

Karl Wernersson situr í stjórnum Actavis Group hf., Milestone ehf. og Sjóvá-Almennra trygginga hf.