Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur gefið út skýrslu um stöðu ÍL-sjóðs, gamla Íbúðalánasjóðs. Í henni kemur fram að til að reka sjóðinn út líftíma skulda þyrfti ríkissjóður að leggja honum til um 450 milljarða króna eða um 200 milljarða að núvirði. Ef sjóðnum væri hins vegar slitið nú og eignir seldar og ráðstafað til greiðslu á skuldum, myndi neikvæð staða nema 47 milljörðum.

Í tilkynningu ráðuneytisins segir að taka þurfi afstöðu til þess hvernig staðið verði að málum, meðal annars hvort frekari fjármunir verði lagðir til ÍL-sjóðs. Áætlað er að með hverjum mánuði sem líður aukist kostnaður ríkissjóðs við uppgjör um 1,5 milljarða króna eða 18 milljarða á ári.

„Líkt og niðurstaða skýrslunnar sýnir þá mæla rök með því að hafist verði handa við að leita leiða til að slíta ÍL-sjóði svo hægt verði að ráðstafa eignum hans og gera upp skuldi,“ segir fjármálaráðuneytið.

„Því er mikilvægt og ábyrgt gagnvart komandi kynslóðum og kröfuhöfum að gengið verði til uppgjörsins fyrr en seinna, óvissa lágmörkuð og viðvarandi taprekstur og hækkun ábyrgðarinnar stöðvuð.“

Í skýrslunni eru lagðar fram sviðsmyndir um mögulega þróun til næstu áratuga sem gera ráð fyrir viðvarandi taprekstri og áhrif þess á ríkissjóð skýrð í ljósi einfaldrar ábyrgðar hans á skuldum sjóðsins. Í einfaldri ábyrgð felst að ríkissjóður tryggir endurgreiðslur á nafnvirði skulda, auk áfallinna vaxta og verðbóta til uppgjörsdags.

Mun reyna á ábyrgð ríkissjóðs árið 2034

Niðurstöður skýrslunnar, sem byggja á stöðu sjóðsins í uppgjöri 30. júní, sýna að sjóðurinn geti greitt afborganir og vexti af skuldbindingum sínum til ársins 2034 og eigi síðar en þá muni reyna á ábyrgð ríkissjóðs. Gert er ráð fyrir að staða sjóðsins þá verði neikvæð um u.þ.b. 260 milljarða króna, sem að núvirði eru 170 milljarðar.

ÍL-sjóður varð til við uppskiptingu Íbúðalánasjóðs og var stofnaður með lögum sem tóku gildi 31. desember 2019. ÍL-sjóður tapaði 16,6 milljörðum króna á fyrri helmingi þessa árs og 13,9 milljörðum á síðasta ári.

Bjarni skipaði verkefnisstjórn í mars síðastliðnum til ráðgjafar um úrvinnslu eigna og skulda ÍL-sjóðs. Verkefnisstjórnina skipa Perla Ösp Ásgeirsdóttir, Stefán Pétursson og Lúðvík Örn Steinarsson.

„Markmið uppgjörs og úrvinnslu eigna og skulda ÍL-sjóðs er að lágmarka áhættu og kostnað ríkissjóðs vegna uppsafnaðs fjárhagsvanda Íbúðalánasjóðs. Þann fjárhagsvanda má rekja til reksturs og fjármögnunarfyrirkomulags Íbúðalánasjóðs og stórfelldra uppgreiðslna á útlánum sjóðsins á síðustu árum.“

Steinþór stýrir samtali við kröfuhafa

„Þá er einnig mikilvægt að kröfuhafar ÍL-sjóðs hafi með góðum fyrirvara skýrar upplýsingar um það hvernig staðið verði að málum af hálfu ríkissjóðs. Ráðuneytið telur mikilvægt að eiga samtal við eigendur krafna og kanna grundvöll samninga um uppgjör og slit sjóðsins sem verður að teljast ákjósanlegasta niðurstaðan og gæti falið í sér hagfellda niðurstöðu fyrir alla aðila,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Steinþór Pálsson, fyrrum bankastjóri Landsbankans, hefur verið fenginn sem milligönguaðili í samtali ráðuneytisins við kröfuhafa.

Fjármálaráðuneytið hefur fengið Steinþór Pálsson, fyrrum bankastjóra Landsbankans, sem milligönguaðila í samtali við kröfuhafa.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)