Arion banki lauk í dag útboði á þremur markflokkum sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru í íslensku kauphöllinni.

Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 21 var stækkaður um 440 milljón krónur á ávöxtunarkröfunni 3,48%. Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 29 var stækkaður um 1.280 milljón krónur á ávöxtunarkröfunni 3,40%.

Öllum tilboðum var hafnað í óverðtryggða flokkinn ARION CB 22 að þessu sinni. Heildareftirspurn í útboðinu var 1.780 milljón krónur. Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokki sem tekinn hefur verið til viðskipta á Nasdaq OMX Íslandi.

Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á að næsta útboð sértryggðra skuldabréfa fari fram þann 7. september næstkomandi. Það sem af er ári 2016 hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 17.820 milljón krónur. Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 54.980 milljón krónur.