Eignarhalds- og fjárfestingafélagið Sund hefur minnkað hlut sinn í Straumi-Burðarási í 3,53% úr 7,28%, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Fjöldi hluta í eigu félagsins eftir viðskiptin nemur 365.611.111 og dregst saman úr 754.500.000.

Sund er í eigu Gunnþórunnar Jónsdóttur (33,3%), Jóns Kristjánssonar (33,3%) og Gabríelu Kristjánsdóttur (33,3%).