Þórður Þórarinsson stjórnmálafræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og tekur til starfa 15. mars næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birt er á vef Sjálfstæðisflokksins.

Þórður er fæddur árið 1967 og hefur undanfarin níu ár verið framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins sem er samstarfsvettvangur Alþingis, Landsþings Grænlands og Lögþings Færeyja.  Þar áður starfaði hann fyrir upplýsingadeild Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar.

Þórður hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn.  Hann sat meðal annars í stjórn Heimdallar í fjögur ár og var formaður félagsins 1994 – 1995 auk þess sem hann sat í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna.

Maki Þórðar er Marta María Ástbjörnsdóttir sálfræðingur og eiga þau þrjá syni.