Origo og KPMG vinna nú að því að þróa lausn, sem ber heitið GreenSenze, og hefur það verkefni að greina kolefnisspor í innkaupum fyrirtækja. Að sögn fyrirtækjanna verður lausnin einföld í notkun en mörgum fyrirtækjum reynist erfitt að greina kolefnisspor í innkaupum sínum.

Markviss greining á kolefnisspori er forsenda þess að fyrirtæki geti mótað aðgerðir sem draga úr kolefnislosun og stuðla að sjálfbærni í rekstri.

„Markmiðið hjá okkur er að smíða lausn sem einfaldar fyrirtækjum að greina innkaupin sín og meta birgja. Við viljum ekki að kolefnisspor innkaupa komi bara inn í uppgjör einu sinni á ári, heldur geti notendur fylgst með þróuninni yfir árið og beitt sér í átt að sínum markmiðum,” segir Hafþór Ægir Sigurjónsson forstöðumaður sjálfbærni hjá KPMG.

Lausnin notfærir sér gögn úr rafrænum reikningum og auðgar þau með ýmsum gagnalindum. Upplýsingarnar eru svo birtar með skýrum hætti í mælaborði þar sem hægt er með einföldum hætti að skoða ítarleg gögn um það sem hægt er að bæta í sjálfbærni fyrirtækja.

„Við erum mjög spennt fyrir samstarfinu við KPMG og finnum fyrir þeim sameiginlega áhuga okkar að búa til vöru sem virkilega hjálpar fyrirtækjum að stíga framfaraskref í sjálfbærnimálum. GreenSenze mun þannig aðstoða fyrirtæki við að átta sig á því hvaða vörur hafa of hátt kolefnisspor fyrir þeirra sjálfbærnimarkmið og ætti að forðast í innkaupum,“ segir Kristín Hrefna Halldórsdóttir, forstöðumaður gæða- og innkaupalausna Origo.