Mörg þekkt andlit má greina á þessari auglýsingu Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2002.

Fremst á myndinni eru þau Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og Gísli Marteinn Baldursson. En auk þeirra voru í framboði Hanna Birna Kristjánsdóttir, Kjartan Magnússon, Guðlaugur Þór Þórðarson, Rúnar Freyr Gíslason, Margrét Einarsdóttir, Jórunn Frímannsdóttir, Elva Dögg Melsteð, Alda Sigurðardóttir, Bolli Thoroddsen og Tinna Traustadóttir.

Auglýsingunni var ætlað að vekja athygli á yngra fólki í framboði á listanum, en hún birtist í DV.

Gamla myndin birtist í Viðskiptablaðinu 30. apríl 2014. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð .