118 kaupsamningum var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu 24. febrúar til 1. mars 2012. Heildarveltan var 4.019 milljónir króna og meðalupphæð á samning 34,1 milljón króna. Meðaltal síðastliðinna 12 vikna í Reykjavík er 84 kaupsamningar og 2.607 milljón króna velta. Tímabilið er því langt yfir meðaltali.

Á sama tíma var 7 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum og jafn mörgum á Akureyri. Á Árborgarsvæðinu var 4 samningum þinglýst .

Þetta kemur fram á vef Þjóðskrár Íslands en fréttina í heild sinni má nálgast hér .