Aflaverðmæti íslenskra skipa í september var 11,1 milljarður króna sem er 12,5% minna en í september 2016. Heildaraflamagn í september nam tæpum 126 þúsund tonnum sem er 11% meiri afli en í september 2016 að því er fram kemur í tölum Hagstofu Íslands.

Verðmæti botnfiskaflans var um 6 milljarðar króna og dróst saman um 13,1%. Af botnfisktegundum var verðmæti þorskaflans rétt rúmir 4 milljarðar sem er 10,5% minna en í sama mánuði ári fyrr.

Aflaverðmæti uppsjávartegunda nam 4,2 milljörðum samanborið við 4,8 milljarða í september 2016 sem er 12,6% samdráttur. Verðmæti flatfiskafla var 595 milljónir króna sem er 5% minna en í september 2016. Verðmæti skelfiskafla dróst einnig saman á milli ára, nam 207,3 milljónum samanborið við 236,5 milljónir í september 2016.

Á 12 mánaða tímabili frá október 2016 til september 2017 nam aflaverðmæti úr sjó 109,3 milljörðum króna, sem er 20,8% samdráttur miðað við sama tímabil ári fyrr.