Hætt var við að fara með Wen Jiabao forsætisráðherra Kína að Kerinu í Grímsnesi eftir að Kerfélagið tilkynnti að Wen og fylgdarlið hans væri ekki velkomið þangað.

Frá þessu er greint á vef Ríkisútvarpsins (RÚV) en Wen fór í dag í ferð um Suðurlandið þar sem hann hefur meðal annars skoðað Þingvelli, Gullfoss og Geysi.

RÚV hefur eftir Óskari Magnússyni, fulltrúa Kerfélagsins sem er eigandi Kersins, að aldrei hafi verið óskað eftir leyfi félagsins til að fara með hópinn að Kerinu. Félagið hafi sett sig í samband við stjórnvöld eftir að hafa lesið um það í fjölmiðlum að til stæði að fylgdarlið Wens skoðaði Kerið.

„Óskar segir að Kerið þoli ekki mikinn ágang ferðamanna auk þess sem félagið sé hvorki hrifið af íslenskum né kínverskum stjórnvöldum. Því hafi það verið tilkynnt að þessu hópur væri ekki velkominn í Kerið og eftir því var farið,“ segir í frétt RÚV.