Forráðamenn bresku lyfsölukeðjunnar Alliance Boots styðja að yfirtökutilboð einkafjárfestingarsjóðsins Kohlberg, Kravis og Roberts & Co og ítalska auðkýfingsins Stefano Pessina verði samþykkt. Þetta þýðir að annar hópur fjárfesta, sem hefur verið leiddur af breska fjármálamanninum Guy Hands, er kominn út í kuldann. Tilboðið hljóðar upp á 1,139 pens á hlut og telur stjórn Alliance Boots það vera sanngjarnt og mælir með að hluthafar takið tilboðinu.