Kia Motors heldur áfram að styrkja stöðu sína á mörkuðum með aukinni sölu á bifreiðum sínum en sala fyrirtækisins í maí jókst um 14,4% á heimsvísu.

Kia seldi alls 268.593 bifreiðar á heimsvísu í síðasta mánuði og seldust 217.772 af þeim utan heimalandsins Kóreu. Þetta samsvarar 15,2% aukning en á heimamarkaði seldust 50.275 bifreiðar sem er aukning um 10,3%.

Sportjeppar Kia voru mest seldu bílar framleiðandans í sterkum sölumánuði og þar má nefna jeppana Sportage og Sorento.

Hinn nýi EV9 kemur á markað síðar á árinu en sportjeppans er beðið með mikilli eftirvæntingu. Kia mun leggja áfram mikla áherslu á rafbíla sína og sjálfbærnilausnir á næstu misserum.