Birta Ísólfsdóttir hefur verið ráðin til ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic Adventures, þar sem hún tekur við stöðu markaðsstjóra. Hún hefur þegar hafið störf hjá Arctic Adventures, að því er segir í tilkynningu.

Birta kemur til Arctic frá stafrænu markaðs- og auglýsingastofunni KIWI þar sem hún starfaði sem markaðsráðgjafi.

Birta er með próf í fatahönnun frá Listaháskóla Íslands og stundaði meistaranám við sama skóla. Hún hefur einnig starfað sem hönnuður og hönnunarstjóri hjá fyrirtækjum á borð við NTC og 66° Norður.

„Það er okkur mikill akkur í að fá Birtu til liðs við okkur hjá Arctic Adventures. Birta hefur mikla reynslu af stafrænu markaðsstarfi, en við erum stöðugt að horfa til þess að bæta stafræna upplifun viðskiptavina okkar og auðvelda þeim að skipuleggja ferðir sínar með okkur. Í þeirri vinnu skiptir skapandi hugsun öllu máli og þar liggja styrkleikar Birtu einnig og mun hún leika mikilvægt hlutverk í frekari uppbyggingu hjá Arctic Adventures,“ segir Renata Blöndal, framkvæmdastjóri sölu, þjónustu og markaðsmála Arctic Adventures.

„Arctic Adventures er öflugt fyrirtæki á sínu sviði og með starfsemi um landið allt. Ég finn strax að innan fyrirtækisins er mikill vilji til að sækja fram á öllum hliðum markaðssetningar ásamt því að styrkja okkur í stafrænni markaðssetningu. Tækifærin í ferðaþjónustu eru óteljandi og það er okkar að grípa þau,“ segir Birta.