Ræstingarfyrirtækið Sólar ehf. hefur ráðið Einar Hannesson sem nýjan framkvæmdastjóra. Hann tók við starfinu 1. mars síðastliðinn af Þórsteini Ágústssyni sem verið hefur framkvæmdastjóri hjá félaginu frá árinu 2007.

Fram á síðasta haust starfaði Einar í tæp sex ár sem framkvæmdastjóri Fastus. Þar áður starfaði hann lengstum sem útibússtjóri Landsbankans í Reykjanesbæ og forstöðumaður hjá Icelandair Ground Services, auk þess að hafa setið í stjórnum ýmissa félagasamtaka og fyrirtækja. Einar er með BSc gráðu í iðnaðartæknifræði og MBA gráðu frá Háskóla Íslands.

Sólar eru eitt af stærstu ræstingarfyrirtækjum landsins með um 450 starfsmenn sem starfa við almenn þrif, hreingerningar og sérverkefni.

„Við erum ánægð með að fá Einar til starfa hjá okkur til að leiða áframhaldandi stefnumótun og vöxt Sólar. Fyrirtækið hefur þróast hratt og tekist á við mikinn vöxt undanfarin ár undir stjórn Þórsteins fráfarandir framkvæmdastjóra, en hann mun áfram sinna ráðgjöf hjá Sólar auk þess að vera í eigendahópi félagsins“ segir Ólafur Páll Einarsson, stjórnarformaður Sólar.