Björgvin Víkingsson hefur verið ráðinn innkaupastjóri og aðstoðarframkvæmdastjóri Bónuss frá og með 1. maí 2023. Björgvin hefur starfað sem forstjóri Ríkiskaupa frá árinu 2020. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Björgvin er með meistaragráðu í aðfangakeðjustjórnun frá ETH háskólanum í Zurich og B.Sc. gráðu í umhverfis- og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands.

Björgvin hefur reynslu af innkaupum og vörustjórnun hjá alþjóðlegum fyrirtækjum á borð við Maersk, Aasted Aps, DT Group og Marel hf. Þá hefur Björgvin jafnframt haldið vinnustofur og kennt vörustjórnun og stefnumarkandi innkaup við Háskólann í Reykjavík.

„Starfsemi Bónus hefur gengið vel og umsvifin aukist verulega, bæði vegna fjölgunar verslana og rýmri opnunartíma, einnig leita nú sífellt fleiri í hagkvæmari verslunarkosti í matvöru, en þar liggja einmitt áherslur og styrkur Bónus. Þetta þýðir að það eru fleiri verk að vinna og það er virkilega ánægjulegt að fá nýjan og öflugan liðsmann, Björgvin Víkingsson, í Bónus-teymið. Bónus hefur alla tíð lagt áherslu á hagkvæmni í innkaupum ásamt því að halda rekstrakostnaði í lágmarki, Björgvin verður því góður liðstyrkur og mun gera gott teymi enn betra,“ segir Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss.