Leifur Grétarsson hefur tekið við sem forstöðumaður viðskiptastýringar hjá Motus. Hann mun bera ábyrgð á þjónustu, sölu og ráðgjöf til viðskiptavina, að því er kemur fram í tilkynningu.

Leifur kemur til Motus frá Creditinfo þar sem hann hefur starfað frá árinu 2015, m.a. sem sölustjóri minni fyrirtækja og viðskiptastjóri stórra fyrirtækja. Hann stýrði þar einnig vöruþróunarsamstarfi við nokkur af stærstu fyrirtækjum landsins.

Leifur er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands með áherslu á fjármál og stundaði auk þess meistaranám í fjármálum fyrirtækja í sama skóla.

„Það er mjög spennandi að fá að taka þátt í þeirri vegferð sem Motus er á. Motus er rótgróið fyrirtæki sem er leiðandi á sínu sviði og það verður gaman að þróa áfram þær lausnir og þjónustu sem félagið býður upp á með fjölbreyttum hópi viðskiptavina,“ segir Leifur.

„Við erum mjög spennt að fá Leif til liðs við okkur á þessum tímapunkti. Motus er stærsta og reynslumesta innheimtufyrirtæki landsins en við höfum verið að útvíkka þjónustuframboð okkar til að sjá um alhliða kröfustýringu með Motus fjármögnun og munum kynna og þróa gagnadrifna innheimtu með okkar lykilviðskiptavinum á næstu misserum. Reynsla Leifs mun spila lykilhlutverk á þeirri vegferð,“ segir Brynja Baldursdóttir, forstjóri Motus.