Hlynur Sigurðsson tók við starfi framkvæmdastjóra KPMG á Íslandi um síðustu mánaðamót. Hlynur tók við starfinu af Jóni S. Helgasyni sem starfað hefur sem framkvæmdastjóri síðastliðin 10 ár. Jón er einn af eigendum KPMG og mun áfram starfa hjá félaginu.

Hlynur hefur starfað hjá KPMG í 26 ár en undanfarin ár hefur hann leitt og mótað þjónustu KPMG á Íslandi við sprota- og vaxtarfyrirtæki. Hlynur sat í stjórn félagsins á árunum 2016-2021, þar af sem stjórnarformaður síðasta árið. Hann er viðskiptafræðingur og löggiltur endurskoðandi að mennt.

Hlynur Sigurðsson, framkvæmdarstjóri KPMG.

„Það er mikill heiður að fá að leiða KPMG á Íslandi enda býr fyrirtækið að samhentum og hæfum hópi yfir 300 sérfræðinga um land allt. KPMG er í fremstu röð alhliða ráðgjafarfyrirtækja á Íslandi og við ætlum að halda áfram að vera leiðandi afl og vaxa enn frekar. Það eru margar áskoranir og tækifæri framundan, meðal annars á sviði sjálfbærni og tækniþróunar og á þeim sviðum nýtum við vel okkar góða mannauð og styrkleika alþjóðanets KPMG. Því er okkur mikilvægt að vera eftirsóknarverður vinnustaður þar sem fólkið okkar fær tækifæri til að vaxa og fást við fjölbreytt viðfangsefni með skýran tilgang. Það eru spennandi tímar framundan og ég er þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt.“

Hrafnhildur Helgadóttir, stjórnarformaður KPMG.

„Við bjóðum Hlyn velkominn í starf framkvæmdastjóra KPMG. Hann hefur starfað hjá félaginu í mörg ár og hans góðu kostir, reynsla og faglega þekking munu án efa gagnast félaginu afar vel á komandi árum. Á sama tíma þökkum við Jóni S. Helgasyni, fráfarandi framkvæmdastjóra fyrir hans frábæra starf á undanförnum árum. Starfsemi KPMG hefur vaxið mikið á síðustu árum og hefur Jón átt stóran þátt í þeim góða árangri.“