Jóna Kristín Friðriksdóttir hefur verið ráðin í stöðu sérfræðings á orkusviði N1. Þar mun hún koma að daglegum rekstri tengdum raforkuviðskiptum fyrirtækisins, að því er kemur fram í tilkynningu.

Jóna Kristín er með BSc gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og stjórnun frá Syddansk Universitet. Jóna Kristín hefur áður starfað hjá Frigus, Atlanta, Wow Air og Innnes.

Orkusvið N1 telur nú 8 starfsmenn og hefur vægi þess aukist hratt frá stofnun þess árið 2020. Hlutverk þess er meðal annars að halda utan um sölu N1 á raforku og rafhleðslustöðvum, en fimmtungur af allri orku sem N1 seldi í fyrra var umhverfisvæn.

Í tilkynningu segir að N1 geri ráð fyrir að sala á umhverfisvænum orkugjöfum verði ein af aðaltekjustoðum fyrirtækisins innan örfárra ára. Því hafi verið unnið markvisst að því að styrkja þennan hluta starfseminnar á undanförnum misserum.

Einar Sigursteinn Bergþórsson, forstöðumaður orkusviðs N1:

„Það er mikill fengur fyrir okkur að fá Jónu Kristínu til starfa. Hún hefur víðtæka reynslu og menntun sem á eftir að koma að góðum notum á orkusviðinu, ekki síst í ljósi síaukinnar áherslu á raforku í starfsemi N1. Með ráðningu Jónu munum við ekki aðeins geta sótt fram heldur jafnframt veitt núverandi viðskiptavinum okkar enn betri þjónustu við orkuskipti sín.“