Nanna Kristín Tryggvadóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Hún tekur við stöðunni af Páli Ásgeiri Guðmundssyni sem hvarf til annarra starfa í mars 2022. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu.

Undanfarið ár hefur Nanna Kristín starfað sem framkvæmdastjóri Byggingarfélagsins Hyrnu og Húsheildar. Þar áður starfaði hún í Landsbankanum, lengst af sem aðstoðarmaður bankastjóra. Hún er jafnframt formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna og ein af forsvarskonum góðgerðarfélagsins Konur eru konum bestar.

Nanna Kristín er verkfræðingur að mennt. Hún útskrifaðist með BSc. í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík 2010 og lauk meistaragráðu í rekstrarverkfræði frá Duke háskóla í Norður-Karólínu 2011. Hún er jafnframt með meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík.

Hersir Aron Ólafsson hefur verið aðstoðarmaður Bjarna frá árinu 2020. Með ráðningu Nönnu Kristínar eru aðstoðarmennirnir hans aftur orðnir tveir.