Tekjur Mjólkursamsölunnar (MS) af sölu skyrs á erlendum mörkuðum á þessu ári munu nema um 1,8 milljörðum króna. Þetta kemur fram á vefnum sunnlenska.is . Reiknað er með því að um 60 milljónir skyrdósa verði seldar til Norðurlandanna en til samanburðar seljast árlega um 8 milljónir skyrdósa á Íslandi.

Markaðshlutdeild Mjólkursamsölunnar á sölu skyrs erlendis er um 33%, en um 67% er selt af leyfishöfum undir eftirliti Mjólkursamsölunnar. Í samtali við Sunnlenska segir Aðalsteinn H. Magnússon, sölustjóri MS, að skyr frá Íslandi fari til Færeyja, Grænlands, Sviss og Finnlands, auk þess sem lítill hluti fari á Bandaríkjamarkað.