Í september 2010 voru skráð 121 ný einkahlutafélög (ehf) samanborið við 184 einkahlutafélög í september 2009, sem jafngildir rúmlega 34% fækkun milli ára.

Hagstofan birti í dag tölur yfir stofnun einkahlutafélaga og gjaldþrot fyrirtækja.

Heildarfjöldi nýskráðra einkahlutafélaga er 1233 fyrstu 9 mánuði ársins og hefur nýskráningum fækkað um 35% frá sama tímabili árið 2009 þegar 1895 ný einkahlutafélög voru skráð.

Gjaldþrotum fækkar

Í september 2010 voru 53 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 86 fyrirtæki í september 2009. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot í Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð . Fyrstu 9 mánuði ársins 2010 er fjöldi gjaldþrota 674 sem er rúmlega 5% aukning frá sama tímabili árið 2009 þegar 641 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.