Á fjórða ársfjórðungi 2008 voru að meðaltali 7.400 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 4% vinnuaflsins.

Atvinnuleysi mældist 5,1% hjá körlum og 2,9% hjá konum.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Þar kemur fram að þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 10,8%. Frá fjórða ársfjórðungi 2007 til fjórða ársfjórðungs 2008 fjölgaði atvinnulausum um 3.900 manns.

Á fjórða ársfjórðungi 2007 voru að meðaltali 3.500 atvinnulausir og mældist atvinnuleysi 1,9%. Atvinnuleysi mældist þá 2,1% hjá körlum og 1,8% hjá konum. Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára eða 6,2%.

Þeim sem hafa leitað að vinnu í meira en einn mánuð hefur fjölgað frá fjórða ársfjórðungi 2007 úr 1.200 í 4.400 á fjórða ársfjórðungi 2008, eða um 3.200 manns. Á fjórða ársfjórðungi 2008 höfðu 60% atvinnulausra leitað lengur en einn mánuð en 34,4% á fjórða ársfjórðungi 2007.

Starfandi fólki fækkar um 1.300 og atvinnuþátttakan var 81,5%

Þá kemur fram á vef Hagstofunnar að fjöldi starfandi á fjórða ársfjórðungi 2008 var 175.000 manns og fækkaði um 1.300 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 182.400 manns sem jafngildir 81,5% atvinnuþátttöku.

Atvinnuþátttaka karla var 85,3% og kvenna 77,4%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.

Á fjórða ársfjórðungi 2007 voru alls 179.800 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist 81,7%. Atvinnuþátttaka karla var 86,7% og kvenna 76,4%.

Vinnutími 39,3 klst. á viku

Að lokum kemur fram að á fjórða ársfjórðungi 2008 var meðalfjöldi vinnustunda 39,3 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 43,8 klst. hjá körlum en 34,2 klst. hjá konum.

Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 45 klst. en 21,7 klst.hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Á fjórða ársfjórðungi 2007 var meðalfjöldi vinnustunda 40,8 klst., 45,5 klst. hjá körlum en 35 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 46,2 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu að jafnaði 22,8 klst.

Sjá nánar á vef Hagstofunnar.