Atvinnuleysi mældist 3,1% á fjórða ársfjórðungi 2015. Alls voru 189.200 á vinnumarkaði á aldrinum 16-74 ára á þessum tíma og af þeim voru 183.300 starfandi og 5.900 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 81,6%, hlutfall starfandi mældist 79%. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands.

Starfandi fólki fjölgaði milli ára um 5.300 og hlutfallið jókst um 1,5%. Atvinnulausum fækkaði á sama tíma um 1.800 manns og hlutfallið sömuleiðis um eitt prósentustig. Atvinnulausar konur voru 2.100 og var atvinnuleysi á meðal kvenna 2,3%. Atvinnulausir karlar voru 3.800 eða 3,8%. Atvinnuleysi var 3,6% á höfuðborgarsvæðinu en 2.2% utan þess. Hlutfall atvinnuleysis á höfuðborgarsvæðinu er því

Alls voru 900 sem höfðu verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur og fækkaði um 100 milli ára.

Meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku voru 39,7 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 45,5 klst. hjá þeim sem voru í fullu starfi og 22,6 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi.