Aðeins er 63 atkvæða munur á Halldóri Halldórssyni og Júlíusi Vífli í fyrsta sæti. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og Hildur Sverrisdóttir koma næsta þar á eftir með flest sæti í fyrsta sætið, en eru langt frá Halldóri og Júlíusi.

Einnig er 44 atkvæða munur á Júlíusi Vífli og Kjartani Magnússyni í 2 sætið. Kjartan er hins vegar mjög tryggur í 3 sætinu.

Mjög mjótt er á mununum í 4. sæti. Aðeins munar 6 atkvæðum á Þorbjörgu Helgu, sem er í sætinu eftir fyrstu tölur, og Áslaugu Friðriksdóttur sem er í fimmta sæti. Áslaug er hins vegar ólíkleg að falla niður úr 5. sætinu.

Munurinn hefur minnkað milli Halldórs og Júlíusar eftir 2. tölur.

Hér má lesa nánari skiptingu atkvæða eftir fyrstu tölur.