Afgangur af vöruskiptum við útlönd í ágústmánuði nam 8,2 milljörðum króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Útflutningur var fyrir 55,5 milljarða og innflutningur fyrir 47,3 milljarða króna. Mest var flutt út af sjávarafurðum og iðnaðarvörum en mest var flutt inn af hrávörum og rekstrarvörum auk fjárfestingarvara.