Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,3% og er 4.129 stig við hádegi. Gengi krónu hefur styrkst um 0,1% og er 158,6 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Velta á hlutabréfamarkaði nemur 742 milljónum króna.

Exista [ EXISTA ]  hefur hækkað um 3,9% en félagið birti uppgjör eftir lok markaðar í gær.  Bakkavör [ BAKK ] hefur einnig hækkað í kjölfar uppgjörsins sem var birt eftir lok markaða í gær.