Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,3% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:05 í 640 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Þá hefur krónan styrkst um 3,9% og stendur gengisvísitalan nú í 240 stigum.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,7% í gær og hélt áfram að hækka við opnun í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er tæpar 47 milljónir króna en þar af eru tæpar 23 milljónir króna með bréf í Marel.

Þá er velta fyrir tæpar 19 milljónir króna með bréf í Össur.