Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] stendur enn nánast í stað frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 4.222 stigum. Vísitalan hefur hreyfst lítið í morgun en hefur rokkað í kringum núllið.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu lækkanir einstakra félaga en aðeins eitt félag, Kaupþing [ KAUP ] hefur lækkað í morgun.

Velta með hlutabréf er aðeins 730 milljónir. Þar af eru tæpar 480 milljónir með bréf í Kaupþing, tæplega 120 milljónir með bréf í Exista [ EXISTA ] en talsvert minni velta er með hlutabréf í öðrum félögum.

Krónan stendur einnig nánast í stað frá opnum gjaldeyrismarkaða og er gengisvísitalan nú 158,5 stig.