Úrvalsvísitalan  hefur lækkað um 0,2% og er 4.132 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Krónan hefur styrkst um 0,3% og er 159,9 stig.

Hlutabréf Straums Burðaráss hafa lækkað í kjölfar þess að bankinn kynnti uppgjör sitt fyrir 2. ársfjórðung, um 2,7% það sem af er degi.

Veltan á hlutabréfamarkaði nemur tæplega hálfum öðrum milljarði króna.

Norska vísistalan OBX hefur hækkað um 0,7%. Danska vísitalan OMXC hefur hækkað um 0,7% og sænska vísitalan OMXC hefur hækkað um 1,1%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.