Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,7% og er 5.186 stig við hádegi. Gengi krónu hefur veikst um 1,6% og er 151,2 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Helstu vísitölur í Evrópu eru einnig rauður, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.

Veltan á hlutabréfamarkaði nemur 1,3 milljörðum króna, velta á skuldabréfamarkaði nemur 12,9 milljörðum króna.

Atlantic Petroleum [ FO-ATLA ] hefur hækkað um 0,2% og Icelandair [ ICEAIR ] hefur hækkað um 0,2%.

Atlantic Airways [ FO-AIR ] hefur lækkað um 7,3%, Spron [ SPRON ]  hefur lækkað um 4,1%, Exista [ EXISTA ] hefur lækkað um 3,6%, Eik banki [ FO-EIK ] hefur lækkað um 2,9% og FL Group [ FL ]  hefur lækkað um 2,2%.