Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir október 2010 var verðmæti útflutnings 46,9 milljarðar króna og innflutnings 36,9 milljarðar króna. Vöruskiptin í október, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um tæpa 10 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum sem Hagstofa Íslands birti í morgun.