Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson
© None (None)
Ágúst Ólafur Ágústsson hefur verið ráðinn til forsætisráðuneytisins sem efnahags- og atvinnuráðgjafi forsætisráðherra. Tekur hann við að Sigurði Snævarr og hefur hann störf um mánaðarmótin.

Ágúst, sem er lögfræðingur og hagfræðingur, er fyrrverandi alþingismaður og varaformaður Samfylkingingarinnar.

Er hann ráðinn á grundvelli heimildar í lögum um ráðningu aðstoðarmenn ráðherra, en því þarf ekki að auglýsa starfið.

Ágúst hefur búið í New York undanfarið ásamt fjölskyldu sinni við nám og störf.