Arion banki hækkar vexti sína á inn- og útlánum í dag í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands.

Peningastefnunefnd SÍ hækkaði stýrivexti m 1,25 prósentustig í þar síðustu viku og fóru meginvextir bankans fóru þar úr 7,5 í 8,75 prósent.

Breytilegir vextir þegar veittra lána til einstaklinga hækka 30 dögum eftir tilkynningu nema yfirdráttarlán sem taka gildi 11. júní. Vextir innlána taka breytingum samdægurs. Öll ný útlán bera nýju vextina.

Breytingarnar eru eftirfarandi:

Óverðtryggð íbúðalán

  • Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 1,05 prósentustig og verða 10,39%
  • Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir hækka um 0,10 prósentustig og verða 9,30%

Verðtryggðir vextir íbúðalána haldast óbreyttir.

Kjörvextir

  • Almennir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 1,25 prósentustig.

Yfirdráttur og greiðsludreifing kreditkorta

  • Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga hækka um 1,25 prósentustig

Bílalán

  • Kjörvextir bílalána hækka um 1,25 prósentustig.

Innlán

  • Breytilegir óverðtryggðir vextir veltureikninga hækka um allt að 0,60 prósentustig og sparnaðarreikninga um allt að 1,25 prósentustig.
  • Vextir verðtryggða sparnaðarreikningsins Framtíðarreikningur 0-18 ára hækka um 0,25 prósentustig og verða 1,25%.

Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.

Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.