Arnar Freyr Ólafsson hefur  verið ráðinn til Straums sem hlutabréfamiðlari. Arnar Freyr hefur undanfarið ár unnið hjá greiningardeild Glitnis. Áður var hann meðal annars hjá greiningardeild Landsbankans (Landsbréfum) og þar áður yfirmaður verðbréfaviðskipta Landsbankans á Norðurlandi.

Hann lauk gráðu í alþjóðafjármálafræði frá háskólanum í Alabama í Bandaríkjunum árið 1998.