Árni Páll Árnason, fyrrum formaður Samfylkingarinnar mun taka við stöðu varaframkvæmdastjóra skrifstofu Uppbyggingarsjóðs EES í Brussel í dag en hann var tilnefndur til starfans af íslenskum stjórnvöldum. Á vef utanríkisráðuneytisins segir að Árni Páll mun fara með samskipti við EES/EFTA-ríkin; Noreg, Íslands og Liectenstein og viðtökuríkin fimmtán.

Árni Páll er fyrrverandi félags- og tryggingamálaráðherra 2009–2010 og efnahags- og viðskiptaráðherra 2010–2011. Hann var alþingismaður frá 2007-2016. Árni Páll er lögmaður með sérhæfingu í Evrópurétti. Þá starfaði Árni á sviði Evrópu-, viðskipta- og varnarmála hjá utanríkisráðuneytinu 1992-1998.

Á vef utanríkisráðuneytisins segir að markmið Uppbyggingarsjóðs EES er að draga úr félagslegu- og efnahagslegu misræmi innan evrópska efnahagssvæðisins og efla tvíhliða samstarf.