Atlantic Petroleum hefur sótt um skráningu hjá OMX Kauphöllinni í Kaupmannahöfn, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar. Gert er ráð fyrir að viðskipti með bréfin hefjist þar þann 11. október.

Um er að ræða tvíhliðaskráningu og fer því félagið ekki af Aðallista Kauphallar Íslands.