Vikan sem nú er nýhafin og sú næsta eru þær stærstu í yfirstandandi uppgjörsvertíð Kauphallarinnar vegna fyrsta ársfjórðungs.

Í þessari viku verða átta uppgjör birt og tilkynning vegna fyrsta uppgjörsins, uppgjörs Teymis [ TEYMI ], var birt í gærkvöldi, eins og fram kom á vb.is . Í dag birtir Bakkavör [ BAKK ] einnig uppgjör sitt.

Á morgun birta Exista [ EXISTA ] og Össur [ OSSR ] uppgjör sín og á miðvikudag Kaupþing [ KAUP ], Straumur [ STRB ] og Spron [ SPRON ].

Uppgjör Vinnslustöðvarinnar [ VNST ] verður svo birt á föstudag, 2. maí, sama dag og aðalfundur félagsins verður haldinn. Vinnslustöðin er sem kunnugt er í afskráningarferli en hlutabréf þess verða þó ekki afskráð fyrr en 14. nóvember nk.