Avion Group, fyrir hönd nýstofnaðs dótturfélags Eimskip Atlas Canada, hyggst gera formlegt yfirtökutilboð í allt hlutafé kanadíska fyrirtækisins Atlas Cold Storage Incom Trust (ACSIT), segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Tilboðið hljóðar upp á 574 milljónir kanadískra dollara, sem samsvarar rúmlega 36 milljörðum íslenskra króna. Félagið er skráð í Kauphöllinni í Toronto í Kanada. Gangi þessi kaup eftir nánast tvöfaldast velta Eimskips og verður um 70 milljarðar íslenskra króna á ársgrundvelli.

?Tilboð okkar er sanngjarnt verð fyrir Atlas Cold Storage," segir Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður Avion Group.

?Við höfum skoðað ýmis fjárfestingatækifæri í Norður Ameríku og það eru ýmis tækifæri opin fyrir okkur en við stefnum að því að ljúka þessum kaupum og leitast eftir að samhæfa rekstur Atlas við Eimskip. Það er hins vegar núverandi hluthafa Atlas að leggja sitt mat á tilboð okkar," segir Magnús.

Dótturfélagið Eimskip Atlas Canada hefur gert hluthafasamkomulag við tvo stóra hluthafa ACSIT, Avion Group og KingStreet. Avion Group hefur þegar eignast 9,5% hlutafjár í félaginu og KingStreet ræður yfir 4,4% af hlutafé í ACSIT. Samtals ráða þessir hluhafar nú yfir 13,9% hlutafjár í félaginu.

Gengið hefur verið frá fjármögnun yfirtökunnar að fullu og koma Royal Bank of Canada (RBC Capital Markets) og Canadian Imperial Banking Corporation (CIBC World Markets) til með að fjármagna tilboðið, segir Avion.

Að öðru leyti er tilboðið háð hefðbundnum skilyrðum, sem eru meðal annars að meira en 66,66% útistandandi hluta fáist keyptir og öll tilskylin leyfi sem Avion Group telur nauðsynleg fáist. Komi til yfirtökunnar er hún háð samþykki samkeppnisyfirvalda í Bandaríkjunum og Kanada.

Atlas Cold Storage, sem er í 100% eigu ACSIT, rekur 53 frysti- og kæligeymslur í Norður Ameríku. Atlas býður upp á alhliða geymslu á matvælum fyrir framleiðendur, dreifingaraðila og birgja í matvælaiðnaði í Norður Ameríku.

Tilboð Avion Group hljómar upp á sjö kanadíska dollara fyrir hvern hlut í félaginu. Heildarvirði félagsins (e. enterprise value) er um 574 milljónir kanadískra dollar, eða rúmlega 36 milljarðar króna..

Velta Atlas Cold Storage árið 2005 var um 470 milljónir kanadískra dollara (rúmlega 30 milljarðar króna) og EBITDA nam 55 milljónum dollara (rúmlega 3,5 milljarðar króna).